Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2014

Auglýsing um reglur Dalvíkurbyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5.gr laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og skv. 7. gr. reglugerðar um fasteignaskatt nr. 1160/2005.

Samkvæmt ofangreindum reglum er sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf.

Rétt til styrks eiga félög og félagasamtök sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) eru fasteignaeigendur í Dalvíkurbyggð
b) reka starfsemi sína í húsnæðinu með lögheimili í Dalvíkurbyggð, sbr. 1. gr. reglna þessara, með þeim undantekningum sem greinir í 3. gr. reglna þessara
c) starfsemin skal vera mannúðar-, góðgerðar-, menningar-, íþrótta-, og/eða æskulýðsstarfsemi sem er rekin í almannaþágu eða í þágu æskulýðs
d) um mannúðarsamtök gildir að góðgerðarstarfsemi verður að meginstefnu til að vera unnin í sjálfboðavinnu félagsmanna og ná út fyrir raðir þeirra, s.s. í formi styrkja, gjafa eða stuðnings fyrir almannaheill og samfélagið
e) starfsemin má ekki vera rekin í ágóðaskyni en heimilt er að innheimta tímabundnar tekjur fyrir notkun húsnæðisins ef þær tekjur eru eingöngu nýttar til reksturs húsnæðisins, sbr. þó 3. gr. reglna þessara
f) Starfsemin má ekki njóta samningsbundinna rekstrarstyrkja frá Dalvíkurbyggð eða ígildi þeirra.

Styrkur til greiðslu fasteignaskatts skal nema allt að álögðum fasteignaskatti.

Nú eru fasteignir þær sem um ræðir í 1. og 2. gr. reglnanna jafnframt notaðar til annars en að framan greinir, svo sem til veitinga- eða verslunarreksturs eða til íbúðar fyrir aðra, og skal þá leggja á og innheimta fasteignaskatt í réttu hlutfalli við slík afnot.
Sé húsnæðið leigt út ótímabundið eða hluti þess í fastri útleigu skal styrkveiting takmarkast hlutfallslega sem því svarar.


Ef um fleiri en einn eiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði reglna þessara, er veittur styrkur til þeirra sem uppfylla skilyrði reglnanna, í samræmi við eignarhluta þeirra.


Sækja skal um styrk til greiðslu fasteignaskatts á eyðublöðum sem liggja frammi í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi Dalvíkur, 1. hæð, fyrir 1. júní 2014. Eyðublöðin má einnig nálgast á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is .


Með umsókn um styrki skal fylgja ársreikningur sl. rekstrarárs, lög félagsins þar sem fram koma markmið þess og stutt greinargerð um starfsemina.


Reglurnar í heild sinni og umsóknareyðublað má einnig nálgast á www.dalvikurbyggd.is  eða í þjónustuver Skrifstofa Dalvíkurbyggðar á 1. hæð í Ráðhúsinu á Dalvík.