Stuðningsþjónusta (áður félagsleg liðveisla) fyrir einstaklinga með sérþarfir

Stuðningsþjónusta (áður félagsleg liðveisla) fyrir einstaklinga með sérþarfir

Stuðningsþjónusta (áður félagsleg liðveisla) fyrir einstaklinga með sérþarfir

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir starfsfólki til starfa við stuðningsþjónustu (áður félagsleg liðveisla) við einstaklinga með sérþarfir. Um er að ræða tímavinnu í allt að 15 tíma á mánuði. Vinnutími er breytilegur oftast nær seinnipart dags og/eða um helgar. Starfið gæti því hentað vel með námi eða annarri vinnu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Hvað er stuðningsþjónusta?

Stuðningsþjónusta er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og veita viðkomandi félagslegan stuðning á ýmsum sviðum. Stuðningsþjónusta stuðlar meðal annars að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum. Um er að ræða allt að 15 tímar á mánuði.

Helstu verkefni eru:

  • Persónulegur stuðningur í að aðstoða einstaklinga við ýmsar athafnir daglegs lífs.
  • Veita persónulega ráðgjöf, sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun, innan sem utan heimilis. Sem dæmi má nefna að fara í bíó, leikhús, kaffihús, bókasafn, eiga notalegt spjall, bíltúr gönguferð, rækt, sund og fleira.

Hæfniskröfur:

  • Hlýlegt viðmót, jákvæðni og umhyggja
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
  • Að sýna ábyrgð og vera ábyrgðarfullur
  • Að vera hugmyndaríkur og sveigjanlegur
  • Heint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
  • Bílpróf

Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Umsóknarfrestur er til og með 30.september 2025

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar.

Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.

Upplýsingar gefur Þórhalla Franklín Karlsdóttir (Tóta), ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfangið: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900.