Strákurinn sem týndi jólunum

Strákurinn sem týndi jólunum

Strákarnir í Leikhópnum Vinir ætla að kíkja í heimsókn og sýna okkur hið bráðskemmtilega barna- og fjölskylduleikrit - Strákurinn sem týndi jólunum.

Sýningin fer fram í Víkurröst þann 26. nóvember kl. 17:00
Lengd 40 mín.
Miðaverð 1.000 kr.
Athugið að ekki er posi á staðnum.

Strákurinn sem týndi jólunum fjallar um strákinn Jónatan sem týnt hefur jólagleðinni sinni. Hann er orðinn þreyttur á öllu jólastússi og ákveður því að strjúka að heiman. Á ferðalagi sínu lendir hann í ýmsum skemmtilegum og spennandi ævintýrum sem hann hefði aldrei órað fyrir.

Spurningin er, finnur hann jólagleðina sína aftur?

Hlökkum til að sjá ykkur!

Leikarar og höfundar:

Ingi Hrafn og Jóel Ingi

Heimasíða:

leikhopurinnvinir.wix.com/vinir