Stóri plokkdagurinn 24. apríl 2022

Stóri plokkdagurinn 24. apríl 2022

Sunnudaginn 24. apríl verður stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land en þá er fólk hvatt til að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi, á girðingum, í gróðri og í skurðum eftir veturinn. Það eru samtökin Plokk á Íslandi sem standa að deginum í samstarfi við sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki. Dagurinn er hugsaður sem upphaf plokk tímabilsins og sem vitundarvakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu. Viðburð fyrir stóra plokkdaginn á facebook má finna hér.

Í tilefni að stóra plokkdeginum 2022 ætlar Dalvíkurbyggð að merkja nokkra ,,plokksafnstaði“ í þéttbýli í sveitarfélaginu þar sem íbúar geta skilið eftir afrakstur plokksins sem starfsmenn sveitarfélagsins sjá svo um að koma í förgun. Staðirnir verða auðkenndir með grænum flöggum og þá má sjá á korti hér.

Árskógssandur

  • Bílaþvottaplan við Aðalbraut

Hauganes

  • Bílaþvottaplan við Aðalgötu

Dalvík

  • Við sjóvarnargarð til móts við Sandskeið 6
  • Við ruslatunnu á gatnamótum Böggvisbrautar og Mímisvegs
  • Við göngustíg neðan Krílakots
  • Bílaþvottaplan við Gunnarsbraut

 

Íbúar Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að taka þátt í deginum því margar hendur vinna létt verk.

Allar upplýsingar um stóra plokkdaginn eru aðgengilegar á www.plokk.is

Eigna- og framkvæmdadeild