Stóri plokkdagurinn 2023

Stóri plokkdagurinn 2023

Sunnudaginn 30. apríl verður stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land í sjötta skipti og Dalvíkurbyggð ætlar að sjálfsögðu að vera með.

Þennan dag er fólk hvatt til að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi eftir veturinn. Það eru samtökin Plokk á Íslandi sem standa að deginum sem er hugsaður sem upphaf plokk tímabilsins og sem vitundarvakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu.

Íbúar Dalvíkurbyggðar eru hvattir til að taka þátt í deginum því margar hendur vinna létt verk. Plokk er góð útivera, góð samvera og allir geta tekið þátt. Þetta er okkar umhverfi, þetta er okkar framtíð.

Afrakstur plokksins má skilja eftir í pokum við allar grænu stauratunnurnar okkar og starfsmenn sveitarfélagsins munu svo sjá um að koma því í förgun.

Allar upplýsingar um stóra plokkdaginn eru aðgengilegar hér.

 

Eigna- og framkvæmdadeild