Störf flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Störf flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus störf flokksstjóra vinnuskóla. Flokksstjórar vinnuskóla vinna náið með umhverfis- og tæknisviði Dalvíkurbyggðar og geta því einnig þurft að sinna störfum á því sviði. Gildi sviðsins eru virðing, metnaður og jákvæðni.

 
Starfstími er frá 1. júní – 14. ágúst 2015
 
Hæfniskröfur:
 
·         Uppeldismenntun eða reynsla af störfum með börnum og unglingum er kostur.
·         Tuttugu ára eða eldri.
·         Stjórnunarhæfileikar og skipulagsfærni sem og góð fyrirmynd í leik og starfi.
·         Góð samskiptahæfni og áhugi á jafnréttismálum í víðum skilningi.
·         Áhugi á útivinnu og umhverfismálum.
·         Bílpróf.
·         Hreint sakavottorð.
 
 
Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar nk.
 
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á minni Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/  
 
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
 
Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason (gislirunar@dalvikurbyggd.is), íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar