Stóðréttir í Svarfaðardal

Réttað verður í Tungurétt í Svarfaðardal laugardaginn 6. október. Réttarstörf hefjast kl 13:00. Mikið af efnilegum, vel ættuðum trippum til sölu.
Margrómað kaffihlaðborð að hætti heimamanna.

Á Rimum/Húsabakka hefst dansleikur kl. 23:00. Stulli og Dúi halda uppi fjörinu að vanda. Aðgangseyrir kr.2.000.-

Hestamannafélagið Hringur og Hrossaræktardeild Svarfaðardals og nágrennis.