Starfsstöðvar loka á hádegi kvenfrelsisdaginn 19. júní

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur lagt það til við sveitarstjórn að loka öllum starfsstöðvum sínum frá og með kl. 12:00 á kvenfrelsisdaginn 19. júní næstkomandi og veita starfsfólki frí.
Með ákvörðuninni sýnir sveitarstjórn 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna virðingu og hvetur starfsmenn til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þann dag sem áformuð eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna.