Starfsmaður ráðinn á Endurvinnslustöð

Hafliði Ólafsson var ráðinn starfsmaður Endurvinnslustöðvar Dalvíkurbyggðar en þrír sóttu um. Starfið var auglýst 12. febrúar og rann umsóknarfrestur út 28. febrúar. Í starfinu felst umsjón með endurvinnslustöðinni og er um að ræða um 40% starf auk tilfallandi yfirvinnu.