Starfsmaður óskast til starfa í skammtímavistun fyrir fötluð börn og ungmenni í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi þroskaþjálfa, uppeldismenntaðan starfsmann eða almennan starfsmann til starfa í skammtímavistun frá og með 1. febrúar 2016. Um er að ræða 50 % vaktavinnu.

Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2016

Starfssvið:
• Umönnun og þjálfun fyrir þá einstaklinga sem nýta sér þjónustuna hverju sinni.

Hæfniskröfur:
• Reynsla og áhugi á starfi með börnum og ungmennum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hreint sakavottorð.

Umsjón með starfinu hefur Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar, (eyrun@dalvikurbyggd.is  ) og yfirþroskaþjálfi skammtímavistunar, Hildur Birna Jónsdóttir (hildurbj@dalvikurbyggd.is  )

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir á fyrrgreind netföng.

Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi. Móttaka umsókna verður staðfest með tölvupósti. Valið verður úr hópi umsækjenda á grundvelli viðtala og/eða framlagðra gagna. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum. Vakin er athygli á því að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.