Starfsmaður óskast í afleysingar í sumar

Auglýst er eftir starfsmanni í íþróttamiðstöðina í sumarafleysingar. Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst. Starfsmaðurinn kemur til með að leysa stöðu baðvarðar í klefum karla en að auki þarf að sinna stöfrum við afgreiðslu, gæslu við laug, þrif og að veita ferðamönnum upplýsingar. Starfið er vaktavinna. Starfsmaður þarf að vera tilbúinn að taka hæfnispróf sundstaða og sitja skyndihjálparnámskeið.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi við launanefnd sveitarfélaga. Frekari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í síma 460-4916, 896-3133 en einnig má senda tölvupóst á netfangið bjarni@dalvikurbyggd.is.

Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.

Íþróttamiðstöðin, íþrótta- og æskulýðsfulltrúinn í Dalvíkurbyggð.