Starfsmaður í upplýsingamiðstöð

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir sumarstarfsmanni í upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar en hún er staðsett í Bergi menningarhúsi.

Um er að ræða hlutastarf, jafnt og/eða meira en 50%, frá 25. maí – 31. ágúst. Umsóknarfrestur er til 17. mars 2014.

Hæfniskröfur:
• Mikilvægt er að tala góða íslensku og ensku. Fleiri tungumál eru kostur.
• Góð tölvuþekking og hæfni í að nýta sér upplýsingatækni
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
• Rík þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á ferðaþjónustu og góð staðbundin þekking æskileg
• Reynsla af sambærilegum störfum kostur
• Áhugi á að taka þátt í uppbyggingu upplýsingamiðstöðvar.


Helstu verkefni:
• Upplýsingagjöf til ferðamanna
• Samskipti og samvinna við ferðaþjónustuaðila
• Upplýsingaöflun t.d. bæklingar
• Skráning gesta

Umsóknareyðublöð er að finna á Mín Dalvíkurbyggð.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Víkingsdóttir upplýsingafulltrúi í síma 460 4908 og á netfanginu margretv@dalvikurbyggd.is