Starfsfólk vantar til starfa hjá Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar

Starfsfólk vantar til starfa hjá Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar
  • Starfsmann vantar í 50 og 100% starf við heimilisþjónustu Dalvíkurbyggðar. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
  • Starf heimilisþjónustu felst í að að aðstoða ellilífeyrisþega og öryrkja við heimilishald og persónulega aðhlynningu sem notandi þjónustunnar getur ekki sinnt sjálfur svo og félagslegan stuðning.

Vinnutími er að jafnaði frá 8-17 mánudaga til föstudaga

Um er að ræða mjög spennandi starf sem reynir á hlýlegt viðmót starfsmanns, umhyggju fyrir þeim einstaklingum er starfsmenn sinna, ábyrgð og frumkvæði.

Laun greiðast samkvæmt launakjörum Kjalar.

Frekari upplýsingar veitir Arnheiður Hallgrímsdóttir, starfsmaður félagsþjónstu Dalvíkurbyggðar  í síma 460-4912