Starfsfólk í nýja og glæsilega íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar

Auglýst er eftir starfsmönnum í vaktavinnu við íþróttamiðstöð á Dalvík frá og með hausti. Möguleiki er á 100% stöðu, en einnig hlutastarfi. Starfið felur m.a. í sér móttöku gesta, afgreiðslu og sölu, öryggisgæslu í sundlaug og íþróttasal, baðvörslu, þrif og aðra almenna þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvarinnar, t.d. að veita upplýsingar til ferðamanna um Dalvíkurbyggð og nágrenni. Starfsfólk sér um tjaldsvæði Dalvíkur á sumrin.

Nánari upplýsingar koma fram í auglýsingu. Einnig veitir Bjarni Gunnarsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi frekari upplýsingar, sími: 4604913,
netfang: bjarni@dalvik.is.

Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2010.

Auglýsing