Starf við umsjón félagsstarfs íbúa á Dalbæ laust til umsóknar

Auglýst er til umsóknar starf á Dalbæ heimili aldraðra Dalvík. Starfið felur í sér umsjón með félagsstarfi íbúa á Dalbæ. Auk umsjónar með félagsstarfi getur umsækjandi þurft að sinna umönnun íbúa í ákveðnum tilfellum.

Nánari upplýsingar gefa forstöðumaður og hjúkrunarforstjóri.

Umsóknir skulu berast forstöðumanni Dalbæjar fyrir 23. maí 2013