Starf leikskólastjóra á Krílakoti laust til umsóknar

Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar auglýsir lausa stöðu leikskólastjóra á leikskólanum Krílakoti. Leitað er að jákvæðum og kraftmiklum aðila til að leiða metnaðarfullt starf og stuðla að góðum liðsanda. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent www.capacent.is. Fyrir nánari upplýsingar um starfssvið, hæfniskröfur og fleira smellið á auglýsinguna um stöðu leikskólastjóra.