Starf fræðslu- og menningarfulltrúa laust til umsóknar

Á 400. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar þann 14. desember sl. var ákveðið að auglýsa starf fræðslu- og menningarfulltrúa laust til umsóknar.  Bæjarráð Dalvíkurbyggðar staðfesti svo bókun bæjarráðs á fundi sínum í gær. Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um starf fræðslu- og menningarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.

Hlutverk og ábyrgðarsvið:

Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur umsjón með fræðslu-, íþrótta-, æskulýðs- og menningarmálum á vegum sveitarfélagsins.  Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur frumkvæði og stýrir stefnumótunarvinnu í sínum málaflokkum.  Fræðslu- og menningarfulltrúi undirbýr mál fyrir fræðsluráð og íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð og ber ábyrgð á eftirfylgni með ákvörðunum þeirra.  Fræðslu- og menningarfulltrúi er sviðsstjóri hjá Dalvíkurbyggð og tekur þátt í samstarfi yfirstjórnar sveitarfélagsins. Bæjarstjóri er yfirmaður sviðsstjóra.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
  • Þekking og reynsla af stefnumótunarvinnu
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta og gott vald á íslensku
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, æskileg

Laun og starfskjör eru samkvæmt Starfsmannastefnu Dalvíkurbyggðar.

Frekari upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri, Svanfríður Jónasdóttir í síma 460 4902/ 862 1460, eða sij@dalvik.is

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar ræður í starfið.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Umsókn um starfið, ásamt ferilskrá skal senda til Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu, 620 Dalvík fyrir 15. janúar, merkt Fræðslu- og menningarfulltrúi. Í samræmi við jafnréttisáætlun Dalvíkurbyggðar eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um starfið.