Staða Samherja sterk þrátt fyrir ótryggt efnahagsástand

Samherji, eins og önnur fyrirtæki á Íslandi, hefur ekki farið varhluta af því erfiða efnahagsástandi sem hér ríkir. Þessar aðstæður hafa þó ekki haft jafn mikil áhrif á rekstur Samherja og margra annarra fyrirtækja hér á landi.

Samherji er alþjóðlegur matvælaframleiðandi. Stoðir rekstrarins eru traustar og í mörgum löndum. Mikil hagræðing hefur orðið hjá fyrirtækinu undanfarin ár og verulega bætt afkoma erlendrar starfsemi styrkir okkur til að takast á við þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir í breyttu rekstrarumhverfi.

Allt frá árinu 2006 hefur íslenska krónan verið mjög sterk og óhagstæð útflutningsgreinum. Við þessar aðstæður hefur Samherji hægt á fjárfestingum, selt eignir og hagrætt í rekstrinum. Því er fyrirtækið undir það búið að mæta þeim erfiðleikum sem nú steðja að.

Undanfarnar vikur hefur síðan verið unnið sleitulaust að því að aðlaga reksturinn að breyttum aðstæðum hér á landi og á mörkuðum okkar erlendis. Helstu viðfangsefni á því sviði tengjast greiðsluflæði til og frá fyrirtækinu og samstarfsfyrirtækjum þess.

Staðan á heimsmarkaði er vissulega viðkvæm og í raun getur enginn sagt til um þróunina næstu mánuði. Núverandi staða Samherja er þó sterk og félagið í stakk búið til að standa af sér þá erfiðleika sem að steðja.

Frétt fengin af heimasíðu Samherja www.samherji.is