Sprotasetur Vaxtarsamnings Eyjafjarðar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur ákveðið að bregðast við þrengingum á atvinnumarkaði með stofnun Sprotaseturs Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Með því er sköpuð aðstaða og stuðningsumhverfi fyrir fólk sem vill hrinda nýjum hugmyndum til atvinnusköpunar í framkvæmd. Auglýst hefur verið eftir umsóknum um aðstöðu hjá Sprotasetrinu en 10-12 manns geta starfað þar í senn. Hægt verður að sækja um aðstöðu til sex mánaða, með möguleika á framlengingu. Fyrsti umsóknarfrestur verður til 4. desember næstkomandi.


Viðbrögð við þrengingum á atvinnumarkaði

Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri VAXEY, segir stofnun Sprotaseturs VAXEY koma í kjölfar efnahagsþrenginga og samdráttar á atvinnumarkaði. „Bakgrunnur þess fólks sem stendur frammi fyrir atvinnumissi er fjölbreyttur, allt upp í að fólk hefur mikla menntun og víðtæka starfsreynslu. Með Sprotasetrinu er hugsun okkar að bjóða nýja lausn fyrir þá sem vilja takast á við ný verkefni, jafnvel stofna fyrirtæki og fá til þess stuðning í formi aðstöðu og ráðgjafar. Aðstæður á atvinnumarkaði nú um stundir krefjast þess að allt verði reynt til að spyrna við fótum, efla nýsköpun og skapa ný störf. Sprotasetrið er liður í því hér á svæðinu og er viðbót við þá starfsemi sem Vaxtarsamningur Eyjafjarðar hefur þegar með höndum,” segir Hjalti.


Markmiðið að fjölga fyrirtækjum og störfum

Sprotasetur VAXEY verður á skrifstofuhæð Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar í miðbæ Akureyrar. Þeim aðilum sem fá inni á Sprotasetri VAXEY er lögð til bæði aðstaða og þjónusta frá AFE, auk þess verður þeim veitt aðstoð við aðra fjármögnun. Þar verður boðið upp á fullbúnar skrifstofur með allri þjónustu s.s. ritaraþjónustu, þrifum, símsvörun, nettengingu, fundarherbergi, ljósritun, kaffiaðstöðu og fleiru. Þar verður því glæsilegt sprotasetur fyrir 10-12 manns en auk AFE eru starfsmenn Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi með aðsetur á hæðinni.


Markmið Sprotaseturs VAXEY er að:

·Skapa nýjan valkost fyrir fólk sem vill vinna að arðbærum verkefnum og/eða stofna eigin fyrirtæki.

·Veita aðstöðu til áhugaverðra verkefna einstaklinga og fyrirtækja.

·Veita þjónustu og handleiðslu sérfræðinga og ráðgjafa aðstandenda Sprotaseturs VAXEY og efla svæðisbundna sérþekkingu.

·Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfumog efla framboð á vörum og þjónustu.


Lögð verður áhersla á að skapa verðmæti með arðbærum verkefnum, skapa aðstæður til að nýta nýjustu þekkingu á hverju sviði, auka samvinnu aðila í rannsóknum og þekkingariðnaði og auka starfsþjálfun og menntun.

Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu AFE eða á heimasíðu, www.afe.is .


Nánari upplýsingar veitir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri VAXEY, í síma 460 5700.