Sparisjóðirnir lækka verðtryggða vexti

Sparisjóðirnir munu flestir lækka verðtryggða inn- og útlánsvexti frá og með 11. janúar. Útlánsvextir munu lækka um 0,05% og verðtryggðir innlánsvextir um allt að 0,10%. Einng verður breyting á innlendum gjaldeyrisreikningum. 

Í tilkynningu segir að sparisjóðirnir séu þannig fyrstir fjármálastofnana til að lækka vexti á verðtryggðum inn- og útlánum.