Sorphirða í dreifbýli

Samkvæmt sorphirðudagatali átti að taka sorp í dreifbýli(Svarfaðardal) í gær en vegna misskilnings hjá verktaka fórst það fyrir. Sorpið verður hins vegar tæmt í dag í staðinn.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi misskilningur verktaka hefur í för með sér en framvegis verður sorpið tekið á áður auglýstum dögum. 


Til skoðunar er að færa tæmingadaga yfir á fasta mokstursdaga í dreifbýli.