Söngkvöld í Dalvíkurkirkju

Miðvikudaginn 10. desember kl. 20:30 verður haldið Söngkvöld í Dalvíkurkirkju þar sem fram koma kórar af svæðinu ásamt einsöngvurum. Í Dalvíkurbyggð eru starfræktir sjö kórar og munu fjórir þeirra koma fram á söngkvöldinu og syngja þrjú jólalög hver. Kórarnir sem koma fram eru Kór Dalvíkurkirkju, Samkór Svarfdæla, Karlakór Dalvíkur og Mímiskórinn. Sönghefðin er sterk á svæðinu og hefur hún alið af sér fjölda frábærra söngvara og munu tveir þeirra, Matthías Matthíasson og Kristjana Arngrímsdóttir koma fram á söngkvöldinu. Gestir fá einnig tækifæri til að taka undir í fjöldasöng sem verður stjórnað af Magnúsi G. Gunnarssyni presti.

Þetta er frábært tækifæri til að koma saman, syngja og setja sig í réttu stellingarnar fyrir jólin. Aðgangur er ókeypis og allir hvattir til að koma og njóta saman jólastundar.

Að auki verður söngkvöldinu útvarpað á tíðninni FM 102,3.

Dagskrá:

Kór Dalvíkurkirkju
Guð gleðileg gefi jól þér
Það jólabarn
Er jólaljósin ljóma
Stjórnandi: Hlín Torfadóttir

Mímiskórinn
Á jólum 1912
Gleðileg jól
Skreytum hús með greinum grænum
Stjórnandi: Magnús G. Gunnarsson

Samkór Svarfdæla
Vögguljóð á jólum
Á leið til Betlehem
Í dag er fæddur frelsarinn
Stjórnandi: Helga Bryndís Magnúsdóttir

Karlakór Dalvíkur
Jólasveinar ganga um gólf
Englakór frá himnahöll
Þá nýfæddur Jesús
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Kristjana Arngrímsdóttir
Jólin allstaðar
Hátíð fer að höndum ein

Matthías Matthíasson og
Kór Dalvíkurkirkju

Nóttin var sú ágæt ein