Söngkeppni Samfés í Bergi

Næstkomandi mánudag fer fram undankeppni fyrir söngkeppni Samfés og verður keppnin haldin í Bergi. Keppendur eru úr 8-10 bekk í Dalvíkurskóla og eru alls 6 atriði skráð til leiks. Herlegheitin hefjast kl 20:00 og lýkur um og upp úr 21:00. Sjoppa verður á staðnum sem rennur í sjóð nemendaráðs en taka skal fram að enginn posi er á staðnum.

Kveðja
Nemendaráð félagsmiðstöðvarinnar Týr