Sólarvaka í Tjarnarkirkju

Sólarvaka verður haldin í Tjarnarkirkju í Svarfaðardal laugardaginn 12.janúar og hefst hún kl.15.00 Söngur og upplestur helgaður hækkandi sól og þorranum. Flytjendur, Kristjana Arngrímsdóttir, Kristján E. Hjartarson og Þórarinn Hjartarson. Menningarráð Eyþings styrkir þessa dagskrá. Sólarkaffi að lokinni dagskrá.