Sögustund í Bergi föstudaginn 6. maí

Síðasta sögustundin á þessu vori verður í bókasafninu í Bergi föstudaginn 6. maí n.k. kl. 16.00 Þá mun Guðný Ólafsdóttir koma og lesa fyrir alla krakka, bókina Gula sendibréfið eftir Sigrúnu Eldjárn. Og enn lengjum við bókaorminn okkar. Hann nær bráðum upp í loft og ætlar að vera þar til hausts.
Allt áhugafólk um Sigrúnu og sögustundina hjartanlega velkomið.

Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Bergi