Snjómokstur hafinn

Snjómokstur hafinn

Eins og glöggir menn tóku eftir í morgun hefur snjóað nokkuð síðasta sólarhringinn í Dalvíkurbyggð. Nú er snjómokstur hafinn og eru það vinsamleg tilmæli til allra að fara ekki um á vanbúnum bílum. Þá biðjum við einnig um að allir gæti þess að börn séu ekki að leik í snjóruðningum eða sköflum þar sem búast má við að stórvirk snjómoksturtæki eigi eftir að fara um. 

Íbúar Dalvíkurbyggðar eru beðnir um að sýna snjómokstursverkinu þolinmæði því það tekur skiljanlega tíma að ryðja þessu snjómagni frá áður en það fer að frysta.