Snjókarlagerð við Ráðhúsið

Snjókarlagerð við Ráðhúsið

Þó að við fullorðna fólkið séum orðin leið á þessum, að virðist, endalausa snjóa þá sér ungviðið enn tækifæri til leikja. Þessir krakkar af leikskólanum Kátakoti notuðu daginn í dag og bjuggu til snjókarla fyrir utan Ráðhúsið. Þess má geta að rúmlega tveggja metra jafnfallinn snjór er á lóðinni sunnan við húsið.