Skrifstofur Dalvíkurbyggðar verða lokaðar frá kl. 12:00

Í dag, föstudaginn 19. júní, kvenfrelsisdaginn, verða skrifstofur Dalvíkurbyggðar lokaðar frá kl. 12:00.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. maí sl. að loka öllum starfsstöðvum sínum frá og með kl. 12:00 á kvenfrelsisdaginn 19. júní og veita starfsfólki frí.

Með ákvörðuninni sýnir sveitarstjórn 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna virðingu og hvetur starfsmenn til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þann dag sem áformuð eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna.

Ákveðnum starfsstöðvum sveitarfélagsins sem hafa bakvaktir á frídögum verður haldið í því formi þrátt fyrir almennt frí.