Skráning í leikskóla Dalvíkurbyggðar fyrir næsta skólaár stendur nú yfir. Foreldrar og forráðamenn barna sem þurfa leikskólapláss eru hvattir til að sækja um sem fyrst.
Við úthlutun leikskólaplássa er miðað við kennitölu barns og því mikilvægt að umsókn sé skráð innan umsóknarfrests.
Sótt er um leikskólapláss í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar á heimasíðunni www.dalvikurbyggd.is. Skráning fer fram með rafrænum skilríkjum. Að innskráningu lokinni er farið í Umsóknir og síðan Umsóknir á fræðslu- og menningarsviði, þar sem umsókn um leikskóla er aðgengileg.
Mikilvægt er að vera búin að skrá fyrir 7. apríl 2026.