Skráning hafin í Arctic Coast Way

Mynd frá vefsíðu Markaðsstofu Norðurlands
Mynd frá vefsíðu Markaðsstofu Norðurlands

Samkvæmt vefsíðu Markaðsstofu Norðurlands hefur verið opnað fyrir skráningu fyrirtækja í Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið, en ferðamannaleiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi á Degi hafsins. Arctic Coast Way er spennandi nýtt verkefni í ferðaþjónustu sem á að skapa nýtt aðdráttarafl á Norðurlandi og kynna landshlutann sem einstakan áfangastað. 

Ferðamannavegir eru þekktir í ferðaþjónustu víða um heim, sem tæki til þess að beina ferðamönnum eftir ákveðnum leiðum um skilgreind svæði. Norðurstrandarleið fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri. Til þess að taka þátt í verkefninu þurfa ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og þorpin eða bæirnir á leiðinni að uppfylla ákveðin skilyrði, sem byggjast meðal annars að miklu leyti á staðsetningu. Þá er grunnforsenda fyrir skráningu í ACW að viðkomandi fyrirtæki sé skráð í samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Hér má skoða skjal um þátttökuskilyrði.

Smelltu hér til þess að opna umsóknareyðublaðið.