Skráning á sundnámskeið og leikjanámskeið stendur yfir

Enn eru laus pláss á leikjanámskeiði og sundnámskeiði sem auglýst voru í sumarbæklingi. Skráning fer fram í ÆskuRækt.

Leikjanámskeið:
Í sumar verður boðið upp á leikjanámskeið fyrir börn fædd 2005-2008, vikurnar 23. júní. - 4. júlí. Hægt er að velja á milli tveggja tímasetninga. Fyrri hópurinn byrjar kl. 10:00–12:00 og seinni hópurinn kl. 13:00-15:00. Ýmislegt skemmtilegt verður brallað, t.d göngu-, fjöruferðir, sundferð og margt fl. Námskeiðið kostar 8.000 kr. fyrir báðar vikurnar. Hægt er að skrá barnið á aðra vikuna og borga þá 4.000 kr.
Skráning fer fram í gegnum ÆskuRækt og er mikilvægt að ganga frá skráningu þar.
Leiðbeinandi er Viktor Már Jónasson íþróttafræðingur. Tekið skal fram að leikjanámskeiðið veitir ekki frístundastyrk þó svo að skráning fer fram í gegnum ÆskuRækt

Sundnámskeið:
Fyrir börn sex ára (fædd 2008) frá 16.– 21. júní (alls 5 skipti)
Fyrir börn fimm ára (fædd 2009) frá 23.-27. júní (alls 5 skipti)
ATH. ekki kennt á 17. júní
Hver hópur er 45 mínútur í lauginni í senn.
Námskeiðin hefjast kl. 9 (fyrri hópur) og 10 (seinni hópur).
Hægt er að velja hvor tíminn hentar foreldrum og börnum betur.
Ath. að aðeins 6 börn komast í hvorn hóp fyrir sig hjá yngri börnum (fædd 2009) og 8 börn komast í hópana tvo hjá eldri iðkendum (fædd 2008).
Námskeiðsgjald fyrir börn fædd 2008 og 2009 er 5.000 kr.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum ÆskuRækt og er 25% systkinaafsláttur veittur.
Mikilvægt er að börnin séu mætt 10 mínútur fyrir tíma .
Kennari er Helena Frímannsdóttir íþróttakennari.

Í gegnum tíðina eru ófá börn sem hafa sigrast á vatnshræðslu á þessum námskeiðum. Mörg börn læra sín fyrstu sundtök og enn aðrir bæta við fyrri kunnáttu. Frábær undirbúningur fyrir skólasundkennslu.

Kennslan fer að miklu leiti fram í leikjaformi. Aðaláherslan er að börnin aðlagist vatninu og að þau séu óhrædd við að hreyfa sig á sem fjölbreyttastan hátt í því. Reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir allra barna, en ekki má gleyma því að aldrei eru grunnatriðin of oft æfð. Foreldrum er velkomið að koma og fylgjast með sundtímum. En munið að hluti af því að efla sjálfstæði barnanna er að gefa þeim færi á að njóta sín óstudd og einbeita sér að fullu að leiðbeiningum kennara. Í lok námskeiðs munu þau bjóða ykkur að koma og fylgjast með sér þar sem þau sýna hvað þau hafa lært á námskeiðinu.