Skólamáltíðir-útboð

Dalvíkurbyggð

Skólamáltíðir - Útboð

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í skólamáltíðir fyrir nemendur og starfsfólk í þremur skólum  sveitarfélagsins frá og með skólaárinu 2005-2006. Um er að ræða grunnskólana Dalvíkurskóla og Árskógarskóla með samtals um 335 nemendur og leikskólann Leikbæ með um 25 leikskólabörn. Bjóða á upp á lagaðar máltíðir í hádegi alla starfsdaga grunnskólanna.

Útboðsgögn verða afhent í Ráðhúsinu á Dalvík og hjá Sn-ráðgjöf ehf. Hlíðasmára 14, 201 Kópavogi frá og með mánudeginum 11. júlí nk. gegn 3.500 króna gjaldi. 

Tilboðum skal skilað í Ráðhús Dalvíkur eigi síðar en  þriðjudaginn 19. júlí 2005, kl. 10.45 og verða þau þá opnuð í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsinu að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar sveinbj@dalvik.is

Ráðhúsinu, 620 Dalvík.