Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur unnið skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit sem lagðar voru fram á 40. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 6. febrúar sl. Áður höfðu verið haldnir tveir kynningarfundir með íbúum þar sem farið var yfir framtíðarsýn og uppbyggingu skógarreitanna. Umhverfis- og dreifbýlisráð gerði engar athugasemdir við fyrirliggjandi áætlanir og lagði áherslu á að þær yrðu hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlana sveitarfélagsins á næstu árum. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn tók málið fyrir í framhaldinu og samþykkti samhljóða skógræktaráætlanirnar fyrir Bögg og Brúarhvammsreit. Jafnframt var ákveðið að gera áætlanirnar aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins svo íbúar og aðrir áhugasamir geti kynnt sér efni þeirra. Sveitarstjórn tók einnig undir með umhverfis- og dreifbýlisráði um mikilvægi þess að áætlanirnar verði hafðar til hliðsjónar við árlega fjárhagsáætlanagerð.
Með samþykkt skógræktaráætlana er lagður grunnur að markvissri uppbyggingu og þróun skógræktar á svæðunum til framtíðar, með áherslu á umhverfisvernd, útivist og aukin lífsgæði íbúa.
Skógræktaráætlun fyrir Bögg
Skógræktaráætlun fyrir Brúarhvammsreit