Skóflustunga tekin að nýju menningarhúsi

Skóflustunga tekin að nýju menningarhúsi

Svanfríði I. Jónasdóttur, bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar barst á föstudag skeyti frá bæjarstjóranum á Akureyri, Sigrúnu Björk Jakobsdóttur í tilefni fyrstu skóflustungunnar að nýju menningarhúsi en í því stóð:

Ágætu Dalvíkingar,
Til hamingju með skóflustungu að nýju menningarhúsi.
Gangi ykkur allt að sólu í þessu verkefnï!
Bestu kveðjur,

Bæjarstjórinn á Akureyri,
Sigrún Björk Jakobsdóttir

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Fanney Hauksdóttur, arkitekt hússins og menntamálaráðherra íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur en hún tók fyrstu skóflustunguna að nýju menningarhúsi að viðstöddum miklum fjölda gesta Fiskidagsins mikla.