Skíðamót Íslands - íbúar beðnir að flagga

Kæru íbúar Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.

Senn líður að Skíðamóti Íslands sem haldið verður á Dalvík/Ólafsfirði næstkomandi helgi. Þetta verður mikil hátíð og margir sem munu leggja leið sína til okkar.
Til að mynda góða hátíðarstemningu langar okkur að biðla til ykkar íbúanna að flagga íslenska fánanum keppnisdagana, sem eru föstudagur 20. mars, laugardagur 21. mars og sunnudagur 22. mars.
Að lokum hvetjum við alla til að mæta og taka þátt í gleðinni með okkur og sjá skíðafólk landsins renna sér í brekkunum, hægt er að nálgast dagskrá og frekari upplýsingar á heimasíðu sveitafélaganna, heimsíðu mótsins www.smi2015.skidalvik.is  og facebook síðu mótsins „Skíðamót Íslands 2015“.

Virðingingafyllst,

Mótsnefnd Skíðalandsmóts Íslands 2015