Skíðahópar farnir að panta gistingu í Brekkuseli.

Skíðahópar farnir að panta gistingu í Brekkuseli.

Nú eru hópar sem vilja koma til Dalvíkur á skíði í vetur farnir að panta gistingu í Brekkuseli. Síðustu ár hefur það notið mikilla vinsælda að koma til Dalvíkur á skíði og gista í Brekkuseli sem stendur aðeins 15 metra frá skíðalyftunni. Þeir sem hafa hugsað sér að koma á skíði til Dalvíkur og gista í Brekkuseli eru hvattir til þess að hafa samband sem fyrst við umsjónarmann Brekkusels á opnunar tíma í síma 4661010.

Frétt fengin af www.skidalvik.is