Skíðabraut 3 (Týról) er til sölu

Dalvíkurbyggð auglýsir til sölu húseignina að Skíðabraut 3 á Dalvík. Húsið er þriggja hæða og skiptist í sex einingar. Tilboð óskast í eignina sem verður seld í heilu lagi og í því ástandi sem hún er í dag.
Tilboðsfrestur er til 20. mars 2009 og skal tilboðum skilað til: Tæknideildar Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi Dalvíkur, 620 Dalvík.
Með tilboði skal fylgja áætlun um endurbyggingu hússins og verktíma. Tilboð verða metin í ljósi þeirrar uppbyggingaráætlunar sem fylgir. Dalvíkurbyggð áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum tilboðum. 

Frekari upplýsingar gefur Ingvar Kristinsson húsnæðisfulltrúi, síma 460 4921