Skemmtikvöld á Höfðanum!

Laugardagskvöldið 24. ágúst nk. verður haldin fjölskylduskemmtun í samkomuhúsinu Höfða í Svarfaðardal þar sem ýmsir úr byggðarlaginu munu stíga á svið, syngja og skemmta. Einnig verður haldið uppboð á handverki og ýmsum heimatilbúnum varningi.

Meðal þeirra sem fram koma eru:
Bræðurnir Matti og Arnór ásamt Svavari, Kristjana og Kristján, Teigarbandið og fleiri og fleiri.

Skemmtunin hefst kl 20:00.

Miðaverð er 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og 1.000 kr. fyrir 17 ára og eldri. Athugið - enginn posi á staðnum. Allur ágóði verður nýttur í viðhald á Höfðanum.

Vonum að sem flestir láti sjá sig og leggi góðu málefni lið! :)

Þeim sem ekki sjá sér fært að koma en vilja styrkja málstaðinn er bent á reikningsnúmer Höfðans; 1177-05-404821, kt. 480581-0599 (Ungmennafélagið Atli)

Fyrir hönd Ungmennafélagsins Atla
Undirbúningsnefnd.