Skemmdarverk á Krílakoti

Skemmdarverk á Krílakoti

Þær leiðinlegu fréttir bárust frá stjórnendum á Krílakoti í morgun að skemmdarverk hefðu verið framin á útileiksvæði leikskólans um helgina. Spýtur voru brotnar í kastalanum sem mikið er notaður af nemendum leikskólans og einnig hafa nokkur útiljós verið brotin. 

Aðkoman, sem sjá má á meðfylgjandi myndum af útisvæðinu, var því afar leiðinleg fyrir nemendur og starfsfólk leikskólans í morgun.