Skáldalækur ytri – Breyting á deiliskipulagi fyrir frístundalóðir
Niðurstaða sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 4.júlí 2024 breytingu á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Skáldalækjar Ytri í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér stækkun deiliskipulagssvæðisins til suðurs fyrir þrjár nýjar frístundalóðir. Tillöguna má nálgast hér.
Tillaga að ofangreindu deiliskipulagi var auglýst skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga frá 24.apríl til 9.júní 2024. Á þeim tíma var tillagan aðgengileg í Ráðhúsi Dalvíkur, á heimasíðu sveitarfélagsins og á Skipulagsgátt.
Engar athugasemdir bárust.
Eftir auglýsingu var gerð sú breyting á tillögunni að bætt var inn staðsetningu fyrir brunahana í samræmi við umsögn slökkviliðs Dalvíkurbyggðar.
Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta sent fyrirspurn á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Skipulagsfulltrúi