Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er næstkomandi laugardag, 13. júní,  og hefst upphitun kl. 10.45 við Íþróttamiðstöð Dalvíkururbyggðar.
Hlaupið er rúmir 2 km. og er farið sama hring að venju, út Svarfaðarbraut, upp Hólaveg fram hjá kirkjunni, niður Karlsrauðtorgið og til baka að sundlauginni.
Sundfélagið Rán sér um framkvæmd hlaupsins.
Forskráning er í Samkaup- Úrval og hjá Sundfélaginu Rán (616 9629)