Sjómannadagurinn á Byggðasafninu Hvoli


Á Sjómannadaginn, sunnudaginn 6. júní kl. 12:30, syngur Samkór Svarfdæla undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur um sjóinn og sumarið.

Allir velkomnir. Frítt verður inn á safnið þennan dag. Dagskráin á Sjómannadag markar upphafið að sumardagskrá Byggðasafnsins Hvols á Dalvík, en í sumar verður eitthvað um að vera alla sunnudaga kl. 13:00.