Sjö hundruð myndir á myndlistasýningu við höfnina á Dalvík

Stórri og mikilli myndlistasýning hefur verið komið upp við höfnina á Dalvík í tengslum við Fiskidaginn mikla en í vetur unnu 1. bekkingar í grunnskólum landsins fiskamyndir í samvinnu við Fiskidaginn mikla. Verkefnið ber heitið, Skrautfiskar á línu og eru myndirnar á þessari einstöku listsýningu alls 700 talsins, hver annari fallegri, frá um 30 skólum víðs vegar af landinu.