Sjálfboðaliðar mættir til leiks

Sjálfboðaliðar mættir til leiks

Óhætt er að fullyrða að allt sé nú í bullandi gangi á Húsabakka á vegum Húsabakka ehf. Hópur sjálfboðaliða er mættur til leiks og lætur til sín taka á ýmsum sviðum. Undanfarna daga hefur hópurinn m.a. tekið upp stéttina framan við skólann og fært hana til fyrra horfs. Að endingu var steyptur kantur við enda stéttarinnar og þá þótti tilhlýðilegt að hver og einn verkamaður skildi eftir fótspor sín eða handarför í steypunni.