Sjálfboðaliðar í Rúmeníu óskast.

Óskað er eftir sjálfboðaliðum til starfa í Rúmeníu á tímabilinu frá október 2008 til júlí 2009.
Samtökin ARDR - Rural Association for Regional Development standa fyrir ýmsum verkefnum í Rúmeníu, þar á meðal aðstoð við dreifbýlið á sviði íþrótta-, æskulýðs-, félags- og menningarmála. Verkefnið er styrkt á vegum sjálfboðaliðaáætlunar Evrópusambandsins. Þeir sem hefðu áhuga á því að gerast sjálfboðaliðar í Rúmeníu - hafið samband við Bjarna Gunnarsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; með tölvupósti á bjarni@dalvik.is eða í síma 460-4913 (gsm 896-3133)