Síðustu skólaslit Árskógsskóla fara fram á fimmtudag
02. júní 2026
Skólaslit Árskógsskóla fara fram fimmtudaginn kl. 17:00 í Félagsheimilinu í Árskógi og eru allir velkomnir að vera viðstaddir.
Að þessu sinni bera skólaslitin sérstakan svip, þar sem þau marka lok mikilvægs kafla í sögu sveitarfélagsins. Um er að ræða síðustu skólaslit Árskógsskóla og verður því viðburðurinn bæði hátíðlegur og sögulegur.
Í gegnum árin hefur Árskógsskóli gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu og verið vettvangur náms, þroska og vináttu fyrir fjölmargar kynslóðir nemenda. Við skólaslitin gefst tækifæri til að líta yfir farinn veg, minnast góðra stunda og kveðja skólann með virðingu og þakklæti.
Nemendur, fyrrverandi nemendur, starfsfólk, foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum merku tímamótum.
Við hlökkum til að sjá sem flesta og eiga saman eftirminnilega stund við lok þessa merkilega kafla í sögu Árskógsskóla.
Kaffiveitingar í boði Dalvíkurbyggðar.