Síðasti fundur menningarráðs á þessu kjörtímabili

Síðasti fundur menningarráðs á þessu kjörtímabili

Í dag fundaði menningarráð í síðasta skipti á þessu kjörtímabili en líkur eru á að enginn fulltrúanna muni sitja í næsta menningarráði. Í menningarráði sitja Freyr Antonsson, Hlín Torfadóttir og Þóra Rósa Geirsdóttir en hún er nú að láta af 40 ára ferli trúnaðarstarfa, fyrst fyrir Dalvík og síðar Dalvíkurbyggð eftir sameiningu. Af þessu tilefni var tekin mynd af fulltrúum menningarráðs við upphaf fundar í dag ásamt Hildi Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóra Fræðslu og menningarssviðs og starfsmanns menningarráðs.