Septembermánuður er göngum í skólann mánuður

Septembermánuður er göngum í skólann mánuður

Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingu, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.

Í októbermánuði, ár hvert, eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis hefur undirbúningshópur verkefnisins ákveðið að hvetja skóla til að byrja verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október. Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

  • Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
  • Heilbrigður lífsstíll fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
  • Minni umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi.
  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst.
  • Kennir reglur um öryggi á göngu og hjóli.


Í Dalvíkurskóla munu kennarar ræða við börnin um umhverfismál og heilbrigði. Ásamt því að hvetja þau til þátttöku í verkefninu. Dalvíkurskóli tók einnig þátt í fyrra og voru áhrifin af átakinu þau að færri börnum var skutlað í skólann og var í staðinn fylgt þangað á göngu. Minni umferð í kringum skólann eykur öryggi barnanna. 

Ágrip af sögu verkefnisins
Árið 1976 hófst verkefnið ,,Öruggari leið í skólann" í Óðinsvéum í Danmörku eftir að mörg börn höfðu látist í umferðarslysum. Forystumenn í samfélaginu, kennarar, stjórnmálamenn og opinberir starfsmenn tóku höndum saman til að breyta hættulegum götum í öruggar leiðir. Þremur árum síðar hafði árlegt slysahlutfall lækkað um 85%.

Síðan hefur þessu verkefni verið hleypt af stokkunum í löndum eins og Bretlandi, Ástralíu, Frakklandi, Japan og Bandaríkjunum. Samtökin Greenest City í Ontario áttu frumkvæðið þar með þátttöku þriggja skóla á Toronto-svæðinu. Á sama tíma (1997) kostaði Greater Vancouver Regional District (GVRD) verkefni sem hvatti til virkari samgangna og varð það upphafið að ,,Way to Go!" skólastarfinu. Fljótlega eftir það var ,,Öruggari leið í skólann" komið á um allt Kanada.

Skólagöngudagurinn
,,Göngum með börnunum" í skólann hófst 1997 í Chicago á vegum ,,Partnership for a Walkable America". Árið 1998 hóf Go for Green landsátakið ,,Virkar og öruggar" leiðir í skólann í samstarfi við fyrsta ,,Skólagöngudaginn" í Kanada. Þátttakan hefur aukist með ári hverju og árið 2003 tóku rúmlega 1900 skólar í Kanada þátt.

Árið 2004, varð ,,Alþjóðlegi skólagöngudagurinn" að viku. Nú gengur verkefnið þannig fyrir sig að skólar geta valið sér að hafa átakið á þann máta sem hentar þeim, s.s. einn skólagöngudag, eina skólagönguviku eða nýtt sér alþjóðlega skólagöngumánuðinn - október - til að hvetja til göngu í skólann!