Selma Dögg Sigurjónsdóttir ráðin í starf upplýsingafulltrúa

Selma Dögg Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar en hún hefur sinnt því starfi frá því í lok janúar 2006. Selma Dögg tekur við starfinu af Margréti Víkingsdóttur en hún hefur verið ráðin sem verkefnisstjóri ferðaþjónustuklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Á 392. fundi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar var Margréti þakkað vel unnin störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni.

Selma Dögg er Akureyringur, hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2003 og er auk þess með mastersgráðu í stjórnun frá Oxford Brooks University í Englandi.