Seinkun í póstsendingu á hitaveitureikningum

Seinkun í póstsendingu á hitaveitureikningum

Dalvíkurbyggð  og prentsmiðjan Oddi eru með samning sín á milli um prentun og póstsendingu á reikningum vegna Hitaveitu Dalvíkur.  Vegna kerfislægra mistaka misfórst útprentun vegna síðustu reikningakeyrslu og verða reikningarnir því póstlagðir í dag til þeirra viðskiptavina sem hafa óskað eftir útprentun.   

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.